Spurt og svarað
Ef ég kem og rútan er ekki komin?
Engar áhyggjur! Þér er velkomið að sitja inn á biðstofunni okkar og fá þér
kaffi.
Hvað ef ég er ekki með upplýsingar um heimkomu?
Það er ekkert mál. Endilega sendu okkur mail á info@parkandgo.is , eða
þú getur heyrt í okkur í síma 777:4333.
Hvað ef það eru seinkanir á brottför eða heimkomu?
Engar áhyggjur, þú getur kíkt á rútuáætlunina okkar. Við erum uppá flugvelli
á hálftíma fresti. Svo má alltaf bjalla í okkur.
Er bíllinn öruggari hjá ykkur?
Já, þú leggur bílnum þínum í stæðið okkar sem er malbikað og á vöktuðu
svæði. Við erum þarna allan sólahringinn.
Hvert fer bílinn minn í þrif?
Skínabón sér um að þrífa bílinn þinn og eru þeir 3km frá bílastæðinu okkar.
Er hægt að hlaða bílinn minn hjá ykkur?
Já við bjóðum uppá 80% hleðslu hjá okkur. Við bjóðum því miður ekki upp
á hleðslukapla fyrir hleðsluna.
Ég fékk ekki staðfestingarpóst eftir að ég bókaði?
Endilega athugaðu hvort hann hafi lent í ruslpóstinum eða undir spam, ef
ekki þá máttu endilega senda okkur mail á info@parkandgo.is.
Hvar eru þið staðsett?
Við erum staðsett á Heiðartröð 515,262 Reykjanesbær.
Við viljum hjálpa þér
Ef þú finnur ekki það sem þú ert að leita að sendu okkur tölvupóst