Bílastæði við Keflavíkurflugvöll
Park and GO býður örugg langtímabílastæði aðeins 5 mínútum frá Keflavíkurflugvelli. Þú leggur bílnum hjá okkur, skutlan ekur þér að flugstöðinni og sækir þig þegar þú lendir. Við erum íslenskt fjölskyldufyrirtæki.
Svona virkar bílastæðið
- 1.
Bókaðu á netinu
Veldu dagsetningar og sláðu inn bílnúmer. Þú greiðir í bókuninni og færð staðfestingu strax í tölvupósti.
- 2.
Leggðu bílnum og farðu
Þú kemur á Heiðartröð 515 og leggur á afgirt og vaktað svæði. Skutlan ekur þér beint að flugstöðinni.
- 3.
Við sækjum þig við heimkomu
Þegar þú lendir sækir skutlan þig á flugvöllinn og ekur þér að bílnum þínum.
Langtímabílastæði á einföldu verði
Verðið er grunngjald á hverja bókun auk daggjalds fyrir hvern dag sem bíllinn stendur hjá okkur. Engin falin gjöld, skutlan til og frá flugstöð er innifalin og hægt er að breyta bókun.
Sjá alla verðskrá og aukaþjónustuÖruggt bílastæði allan sólarhringinn
- Malbikað, afgirt og upplýst svæði
- Myndavélaeftirlit allan sólarhringinn
- Starfsfólk á staðnum
- Bíllinn er tryggður á meðan hann er hjá okkur
Staðsetning og skutla
- Frá flugstöðinni
- 3 km, um 5 mínútna akstur
- Skutlan
- Á flugvellinum á hálftíma fresti
- Frá Reykjavík
- Um 45 mínútur eftir Reykjanesbraut
- Heimilisfang
- Heiðartröð 515, 262 Reykjanesbæ
Aukaþjónusta á meðan þú ert í burtu
Þú getur bætt við rafbílahleðslu, alþrifum og bóni, og barnabílstól í skutlunni án endurgjalds.
Algengar spurningar um bílastæðið
Hvað ef fluginu mínu seinkar?
Engar áhyggjur. Skutlan er á flugvellinum á hálftíma fresti og þú getur alltaf hringt í okkur í síma 777 4333.
Hvað ef ég veit ekki hvenær ég kem heim?
Það er ekkert mál. Sendu okkur tölvupóst á info@parkandgo.is eða hringdu í 777 4333 þegar heimkoman liggur fyrir.
Hvað ef skutlan er ekki komin þegar ég mæti?
Þér er velkomið að bíða á biðstofunni okkar og fá þér kaffibolla á meðan.
Get ég hlaðið rafbílinn?
Já, við hlöðum í allt að 80%. Komdu með þinn eigin hleðslukapal.
